Forseti flytur ávarp við setningarathöfn Barnaþings. Þingið er haldið með þjóðfundarformi í Hörpu í Reykjavík og sækja það á annað hundrað ungmenna frá öllu landinu, 11-15 ára gömul. Boðað var til barnaþings í fyrsta sinn árið 2019 og er það reglubundinn vettvangur fyrir börn til þess að láta skoðanir sínar í ljós, taka þátt í lýðræðislegri umræðu um málefni sem snerta þau og veita sjónarmiðum þeirra farveg inn í almenna þjóðfélagsumræðu. Í lok þingsins eru niðurstöður þess afhentar ráðherrum.
Fulltrúar úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna, Salvarar Nordal, færðu forseta formlegt boð á þingið á Bessastöðum í september.