Forseti á fund með Sigursteini Mássyni kvikmyndagerðarmanni. Hann vinnur að heimildarmynd um Leif Muller, íslenskan ríkisborgara af norskum ættum sem bjó í Noregi við upphaf seinni heimsstyrjaldar, var svikinn í hendur nasista og sendur í þrælkunarbúðir þeirra. Leifur komst lífs af og nánari upplýsingar um ævi hans og örlög má lesa hér.