Ríkisheimsókn til Finnlands 2018
Ríkisheimsókn forseta Íslands til Finnlands 15.-17. maí 2018.
Börn taka á móti forsetahjónum við finnsku forsetahöllina.
Forseti Íslands skrifar í gestabók forsetahallarinnar í Helsinki. Ljósmynd: Juhani Kandell/Skrifstofa forseta Finnlands.
Frá einkafundi forseta Íslands og forseta Finnlands.
Frá einkafundi forsetafrúar Íslands og forsetafrúar Finnlands.
Fundur sendinefnda Íslands og finnsku gestgjafanna í forsetahöllinni í Helsinki.
Forsetar Íslands og Finnlands ávarpa fréttamenn í forsetahöllinni. Ljósmynd: Juhani Kandell/Skrifstofa forseta Finnlands.
Forseti kemur til hádegisverðar í ráðhúsi Helsinki.
Forseti skrifar í gestabók ráðhússins í Helsinki en hjá honum standa borgarstjóri og forseti borgarstjórnar. Ljósmynd: Juhani Kandell/Skrifstofa forseta Finnlands.
Frá borðhaldi í ráðhúsi Helsinkiborgar. Ljósmynd: Juhani Kandell/Skrifstofa forseta Finnlands.
Forseti skrifar í gestabók finnska þjóðþingsins.
Forseti Íslands og Paula Risikko, forseti finnska þingsins, flytja ávarp í þinghúsinu.
Forseti ræðir við Juha Sipilä, forsætisráðherra Finnlands, í embættisbústað hans.
Frá fundi forseta með forsætisráðherra Finnlands og sendinefndum.
Heimsókn Elizu Reid forsetafrúar í Hönnunarsafnið í Helsinki.
Frá heimsókn forsetafrúar í Þjóðskjalasafnið í miðborg Helsinki.
Forseti leggur blómsveig til minningar um fallnar hetjur í Hietaniemi minningarkirkjugarðinum.
Forsetahjón Finnlands og Íslands heilsa gestum sem koma til hátíðarkvöldverðar í forsetahöllinni.
Forseti og forsetafrú í hátíðarkvöldverði finnsku forsetahjónanna.
Fundur um heilbrigðistækni, haldinn af Samtökum iðnaðarins í Palace hótelinu í Helsinki.
Forsetar Íslands og Finnlands skoða ísbrjótinn Urho. Ljósmynd: Juhani Kandell/Skrifstofa forseta Finnlands.
Frá umræðufundi um málefni norðurslóða sem efnt var til í ísbrjótnum Urho.
Eliza Reid forsetafrú ávarpar gesti í hádegisverði í boði Íslandsstofu.
Gestir á umræðufundi um læsi og lestrarörvun sem forsetafrú tók þátt í og haldinn var í Hanaholmen.
Forseti boðinn velkominn í miðstöð lífsleikniverkefnisins Me & MyCity í Espoo.
Forseti tekur þátt í lífsleikniverkefninu Me & MyCity.
Jukka Kola, rektor Helsinkiháskóla, kveður forseta Íslands að loknum fyrirlestri sem hann flutti í hátíðarsal skólans.
Frá heimsókn forsetafrúar í Aalto háskólann.
Forseti Finnlands og forsetafrú koma til móttöku forseta Íslands í Finlandia húsinu í Helsinki.
Sauli Niinistö, forseti Finnlands, flytur ávarp í léttum dúr í Finlandia húsinu.
Forsetahjónin hlusta ásamt Sigurði Inga Jóhannssyni samgönguráðherra og konu hans á kynningu um tæknigarða Turkuborgar.
Frá heimsókn forsetahjóna í Turku Science Park.
Forseti ávarpar gesti í Turkuháskóla.
Undirritun viljayfirlýsingar um samstarf Háskóla Íslands og Turkuháskóla um rannsóknir á og baráttu gegn einelti í skólum.
Forsetahjón koma til Turkukastala og fá þar leiðsögn um staðinn.
Forsetahjón skoða líkan af hinum forna Turkukastala ásamt borgarstjóra Turku.
Frá hádegisverðarboði borgarstjórnarinnar í Turku.
Forseti ávarpar gesti á samkomu í Åbo akademi í Turku.
Félagar í Flórukórnum sem flutti íslenska tónlist í Åbo akademi háskólanum.
Pallborðsumræður sagnfræðinga í Åbo akademi um notkun og misnotkun sagnfræðinnar.