Opinber heimsókn í Snæfellsbæ
Heimsókn 30.10. 2019. Ljósmyndari: Alfons Finnsson.
Forsetahjón, bæjarstjóri og aðrir gestir taka vel undir kynningu nemenda á átthagafræði og fleiri viðfangsefnum við skólann.
Forseti ræðir við grunnskólanema í Ólafsvík.
Forsetahjón ásamt hópi tvítyngdra nemenda við Grunnskólann í Snæfellsbæ.
Frá heimsókn í leikskólann Krílakot.
Forsetahjónin ræða við krakka í Krílakoti í Ólafsvík.
Forsetahjónin fá kynningu á framkvæmd "Leikur að læra" verkefnisins í Krílakoti.
Drengur sem er að æfa sig í nöfnum litanna ræðir við forseta.
Í fiskvinnslunni Valafelli: Björn Erlingur Jónasson, Heiðar Friðriksson ("Teni"), Kristinn Jónasson bæjarstjóri og Björn Hilmarsson forseti bæjarstjórnar.
Forseti heilsar upp á einn dvalargesta á Jaðri í Ólafsvík.
Steinn Hansson, dvalargestur á Jaðri, heilsar hér upp á forseta og bauð svo honum og frú Elizu að skoða íbúð sína þar.
Inga Kristinsdóttir forstöðukona segir frá starfseminni á Jaðri.
Forsetahjón ásamt einum starfsmanna á Jaðri.
Forseti ræðir við Hilmar Björnsson sem á fyrri tíð var skipverji á vitaskipinu Hermóði.
Forsetafrú þiggur að gjöf fallega háleista frá einum dvalargesta á Jaðri.
Hópur dvalargesta og starfsmanna ásamt forsetahjónum og fleiri gestum á Jaðri í Ólafsvík.
Syngjandi krakkar tóku myndarlega á móti forsetahjónum við komuna í grunnskólann á Hellissandi.
Forsetahjón þiggja soðningu í hádegismat á Hellissandi.
Forsetahjón ásamt Hilmar Má Arasyni skólastjóra og Elfu Ármannsdóttur aðstoðarskólastjóra og fleiri starfsmönnum í grunnskólanum á Hellissandi.
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, segir forsetahjónum frá bæjarfélaginu á fundi í bæjarskrifstofunni á Hellissandi.
Forsetahjónin ásamt bæjarstjórn og bæjarstjóra Snæfellsbæjar fyrir utan bæjarskrifona á Hellissandi.
Frá heimsókn í KG fiskverkunina í Rifi.
Hjálmar Kristjánsson, forstjóri KG fiskverkunar í Rifi, segir gestunum frá fiskvinnslu fyrirtækisins.
Forsetahjón ásamt Hjálmari Kristjánssyni og sonum hans tveim sem starfa við fyrirtækið.
Frá málstofu um áskoranir og tækifæri í ferðageiranum í Snæfellsbæ sem efnt var til í gestastofu þjóðgarðsins að Malarrifi.
Forseti færir Snæfellsbæ gjöf á hátíðarsamkomu í félagsheimilinu Klifi.
Sigrún Ólafsdóttir og Kristinn Jónasson færa forsetahjónum gjafir frá bæjarfélaginu.