Opinber heimsókn í Skaftárhrepp
Frá opinberri heimsókn forseta Íslands til Skaftárhrepps 2. júní 2022.
Forseti ræðir við íbúa á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Klausturhólum.
Forseti ásamt starfsliði Klausturhóla á Kirkjubæjarklaustri.
Forseti ásamt Auðbjörgu Bjarnadóttur, stjórnanda heilsugæslunnar á Kirkjubæjarklaustri, og samstarfsfólki hennar.
Bjartmar Pétursson og fleiri segja forseta frá starfsemi Klausturbleikju á Teygingalæk á Brunasandi.
Forseti og Katrín Gunnarsdóttir við komu forseta til Kirkjubæjarskóla.
Forseti spjallar við nemendur Kirkjubæjarskóla í hádegishléi.
Nokkrir af starfsmönnum Kirkjubæjarskóla fagna hálfrar aldar afmæli skólans.
Forseti ásamt nemendum úr unglingadeild Kirkjubæjarskóla.
Rætt við nýkjörna sveitarstjórnarmenn Skaftárhrepps í fundarsal Kirkjubæjarstofu.
Hlýtt á kynningar á starfsemi ýmissa stofnana og starfsmanna í Kirkjubæjarstofu.
Forseti ávarpar málstofu um sóknarfæri í Skaftárhreppi.
Frá heimsókn í heilsuleikskólann Kærabæ.
Hörður Davíðsson sýnir forseta öskulög í byrgi hjá Efri-Vik í Landbroti.
Forseti ásamt starfsfólki Hótels Laka í Landbroti.
Forseti afhendir Söndru Brá Jóhannsdóttur sveitarstjóra gjöf í á hátíðarsamkomu í félagsheimilinu Kirkjuhvoli.
Heilsað upp á tvo fálkaorðuhafa í Kirkjuhvoli, þær Ólafíu Jakobsdóttur og Auðbjörgu Bjarnadóttur.
Forseti ávarpar hátíðarsamkomu í félagsheimilinu Kirkjuhvoli.