Forseti afhendir íslensku menntaverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Markmið verðlaunanna er sem fyrr að vekja athygli á og hefja til vegs í samfélaginu það metnaðarfulla og vandaða starf sem unnið er með börnum og ungmennum á öllum skólastigum. Verðlaunaathöfninni var sjónvarpað af RÚV og má sjá útsendinguna hér.
Verðlaunin voru veitt í fjórum flokkum, auk hvatningarverðlauna:
Verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur hlýtur Leikskólinn Rauðhóll í Reykavík fyrir fagmennsku og gæði í leikskólastarfi og öflugt þróunarstarf.
Verðlaun sem framúrskarandi kennari hlýtur Elísabet Ragnarsdóttir leikskólakennari og aðstoðarleikskólastjóri við leikskólann Heiðarborg í Reykjavík fyrir einstaka fagmennsku við leikskólakennslu.
Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni hlýtur þróunarverkefnið Átthagafræði í Grunnskóla Snæfellsbæjar en það beinist að því að efla jákvæð og virk tengsl skóla og samfélags, þekkingu nemenda á heimabyggð sinni og auka fjölbreytni í námi.
Verðlaun fyrir framúrskarandi iðn- eða verkmenntun fær Tækniskólinn fyrir átaksverkefnið #kvennastarf sem unnið hefur verið á hans vegum í samvinnu við aðra iðn- og verkmenntaskóla og beinst hefur að því að vekja athygli á fjölbreyttum störfum í iðn-, tækni- og verkgreinum og benda á þann kynjamun sem hefur viðgengist í sumum starfsstéttum.
Hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2022 hlýtur Menntaskóli Borgarfjarðar fyrir framsækna endurskoðun á námskrá með það að leiðarljósi að búa nemendur sem best undir áskoranir í lífi og starfi í nútíð og framtíð.