Forseti heimsækir Dartmouth College í New Hampshire og heldur þar fyrirlestur um stöðu Íslands á alþjóðavettvangi og þjóðernishyggju á tímum hnattvæðingar í fyrirlestraröð sem kennd er við Vilhjálm Stefánsson landkönnuð. Einnig átti forseti fund með rektor skólans, veitti viðtal við skólablað og heimsótti bókasafnið þar sem bækur Vilhjálms Stefánssonar eru varðveittar ásamt handritum hans. Þá átti forseti fund með fulltrúum Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar á Íslandi, sem þarna voru staddir, og starfsmönnum Norðurslóðastofnunar háskólans, Institute of Arctic Studies, auk þess sem hann skoðaði háskólasvæðið í fylgd nemenda við skólann. Hér er upptaka frá fyrirlestri forseta.
Fréttir
|
08. nóv. 2022
Fyrirlestur við Dartmouth háskólann
Aðrar fréttir
Fréttir
|
31. júlí 2024
„Guðni kveður Bessastaði"
Forseti ræðir embættistíð sína við Ríkissjónvarpið.
Lesa frétt
Fréttir
|
30. júlí 2024
Varnir og viðbrögð í Grindavík
Forsetahjón taka á móti fólki sem vann að verndun innviða.
Lesa frétt