Forseti afhendir nýsköpunarverðlaun við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin hlutu þeir Axel Pálsson, Tómas Frostason og Tómas Orri Pétursson fyrir verkefnið Vélræn endurhæfing í heimahúsi með sýndarveruleika. Allir eru þeir verkfræðinemar við Háskólann í Reykjavík og leiðbeinandi þeirra var Pétur Már Halldórsson hjá íslenska nýsköpunarfyrirtækinu Nox Medical.
Verkefnið fólst í hönnun og smíði frumgerðar að tæki til aðstoðar við endurhæfingu á skertri skynjun í höndum vegna heilablóðfalls. Auk tækisins var hannað snjallforrit sem gegnir margþættu hlutverki.
Alls voru sex öndvegisverkefni tilnefnd til verðlaunanna í ár. Þau eru unnin af háskólanemum í samstarfi við leiðbeinendur og fyrirtæki og hlutu þau öll viðurkenningu:
• Jöklabreytingar og sjávarstaða umhverfis Ísland
• Vélræn endurhæfing í heimahúsi með sýndarveruleika
• Sea Saver
• Digital Symptom Tracker for Kidʼs Periodic Fever
• Myndræn skráning búsetuminja og lýðvirkjun
• Leikskólalóðir á norðurslóðum
Nánari upplýsingar um hvert verkefni má finna á vef Rannsóknamiðstöðvar Íslands – Rannís.