Forseti heiðrar slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn í afmælisfagnaði Landssambands þeirra. Félagið var stofnað 12. maí 1973 og á því 50 ára afmæli. Í tilefni dagsins var opið hús í nýrri félagsaðstöðu LSS í Reykjavík og afhenti forseti fyrrverandi formönnum félagsins heiðursmerki. Þá færði forseti félagsmönnum öllum hamingjuóskir í tilefni tímamótanna og hins nýja húsnæðis og þakkaði þeim mikilvæg störf í samfélagsþágu.
Fréttir
|
12. maí 2023
50 ára afmæli LSS
Aðrar fréttir
Fréttir
|
31. júlí 2024
„Guðni kveður Bessastaði"
Forseti ræðir embættistíð sína við Ríkissjónvarpið.
Lesa frétt
Fréttir
|
30. júlí 2024
Varnir og viðbrögð í Grindavík
Forsetahjón taka á móti fólki sem vann að verndun innviða.
Lesa frétt