Forseti tekur á móti sendinefndum frá Slóvakíu sem komnar eru hingað til lands til að kynna sér reynslu Íslendinga af nýtingu grænnar orku. Fyrir sendinefndunum fóru ráðherra umhverfismála í Slóvakíu, Milan Chrenko, og viðskipta- og innviðaráðherra landsins, Peter Balik. Í för með ráðherrunum var viðskiptasendinefnd og sendinefnd skipuð sérfræðingum í orkumálum.
Heimsóknin kemur í kjölfar opinberrar heimsóknar forsetahjóna til Slóvakíu árið 2022. Þá hélt þangað fjöldi fulltrúa úr íslensku viðskiptalífi með það markmið að efla samstarf við Slóvaka á sviði jarðhitanýtingar, rannsókna og nýsköpunar. Grænvangur skipuleggur ferð slóvakísku sendinefndanna hingað til lands.