Forseti tekur á móti listafólki og skipuleggjendum hátíðarinnar List án landamæra. Hátíðin er nú haldin í tuttugasta sinn, var fyrst árið 2003 á Evrópuári fatlaðra og hefur farið fram árlega síðan. Sérstakir gestir 20 ára afmælishátíðarinnar eru breski listhópurinn Drag Syndrome en auk þeirra tekur fjöldi íslenskra listamanna þátt. Fyrr á árinu tók forseti þátt í útnefningu listafólks ársins við afhöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík.
List án landamæra sýnir öll listform en er eina hátíðin á Íslandi sem leggur áherslu á listsköpun fatlaðs fólks.