• Forseti og Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, ásamt Gísla Þorgeiri Kristjánssyni, íþróttamanni ársins 2023 og Sigrúnu Huld Hrafnsdóttur sundkonu sem útnefnd var í Heiðurshöll ÍSÍ. Ljósmynd/Mummi Lú.
  • Forseti flytur ávarp við hátíðarviðburð ÍSÍ og Samtaka íþróttafréttamanna. Ljósmynd/Mummi Lú.
  • Íþróttamaður ársins 2023 er Gísli Þorgeir Kristjánsson, handknattleiksmaður í Magdeburg í Þýskalandi. Ljósmynd/Mummi Lú.
  • Íþróttamaður ársins 2023 er Gísli Þorgeir Kristjánsson, handknattleiksmaður í Magdeburg í Þýskalandi. Ljósmynd/Mummi Lú.
  • Ljósmynd/Mummi Lú.
  • Íþróttamaður ársins 2023 er Gísli Þorgeir Kristjánsson, handknattleiksmaður í Magdeburg í Þýskalandi. Ljósmynd/Mummi Lú.
Fréttir | 04. jan. 2024

Íþróttamaður ársins

Forseti sækir hátíðarviðburð ÍSÍ og Samtaka íþróttafréttamanna og flytur þar ávarp. Afhentar voru viðurkenningar til íþróttafólks sérsambanda ÍSÍ og tilkynnt um kjör SÍ á íþróttamanni ársins, liði ársins og þjálfara ársins. Íþróttamaður ársins 2023 er Gísli Þorgeir Kristjánsson, handknattleiksmaður í Magdeburg í Þýskalandi. Þá var Sigrún Huld Hrafnsdóttir sundkona útnefnd í Heiðurshöll ÍSÍ.

Forseti Íslands er verndari íþróttahreyfingarinnar. Í máli sínu áréttaði hann að íþróttir væru fyrirtaks leið til þess að efla einingarhug þjóðar. Íþróttir, rétt eins og heilbrigð ættjarðarást, þurfi að snúast um jákvæðni, vorgleði og baráttuhug en líka væntumþykju og hlýju og að bera virðingu fyrir náunganum. Athöfnin var í beinni útsendingu á ríkissjónvarpinu og má sjá upptöku hennar hér.

Pistill forseta: Í stúkunni stöndum við öll saman.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar