• Fulltrúar ELKO ásamt forseta. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
  • Fulltrúar Bara tala ásamt forseta. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
  • Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
  • Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
  • Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
Fréttir | 14. feb. 2024

Menntadagur atvinnulífsins

Forseti flytur ávarp á Menntadegi atvinnulífsins og afhendir Menntaverðlaun atvinnulífsins. Þetta er í ellefta sinn sem Menntadagurinn er haldinn, að þessu sinni undir yfirskriftinni Göngum í takt - er menntakerfið að halda í við þarfir atvinnulífsins?

Í ávarpi sínu minnti forseti á mikilvægi víðsýni, fjölbreytni og sveigjanleika í menntakerfinu. Mikilvægast væri að nemendur á öllum aldri fengju tækifæri til að rækta sína hæfni og stefna að því að láta eigin drauma rætast, sjálfum sér og samfélaginu öllu til heilla. Sömuleiðis væri brýnt að menntun snerist um meira en hæfni og tækni. Hún yrði einnig að snúast um góð gildi og mennsku, enda hefur löngum verið bent á að þessi hugtök eru náskyld, menntun og mennska, menntun og menning.

Þá greindi forseti frá handhöfum Menntaverðlauna atvinnulífsins, sem veitt voru í tveimur flokkum: Menntafyrirtækið og Menntasprotinn. Menntafyrirtæki ársins er Elko. Árið 2019 var mörkuð ný stefna hjá fyrirtækinu þar sem lögð er sérstök áhersla á fræðslu, þjálfun og ánægju starfsfólks. Þá hlaut Bara tala viðurkenningu sem Menntasproti ársins. Fyrirtækið nýtir sér gervigreind og íslenska máltækni til að veita fyrirtækjum og stofnunum stafræna og gagnvirka íslenskukennslu fyrir erlent starfsfólk sitt. Upptöku frá viðburðinum má sjá hér.

Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar