Forseti tekur á móti hópi ungmenna ásamt fulltrúum minningar- og styrktarsjóðsins Örninn. Á vettvangi hans er staðið að helgardvöl og samverustundum fyrir börn og unglinga sem misst hafa náinn ástvin. Þessa helgi liggur leið þeirra í Vatnaskóg. Forseti Íslands er verndari Arnarins. Verkefnisstjóri Arnarins er Matthildur Bjarnadóttir, guðfræðingur og sorgarráðgjafi. Vídalínskirkja í Garðabæ er bakhjarl verkefnisins.
Pistill forseta: Árnaðaróskir til ungmenna