Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Malaví, Thomas John Bisika, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um þróunarsamstarf Íslands og Malavís í áranna rás og nýafstaðna heimsókn forsætisráðherra þangað. Forseti rakti sjónarmið Íslands á alþjóðavettvangi, áherslu á mannréttindi, virðingu fyrir alþjóðalögum, samstöðu í umhverfismálum og nýtingu grænnar orku. Í því sambandi var sérstaklega rætt um möguleika á að nýta jarðvarma í Malaví til orkuframleiðslu.
Fréttir
|
28. maí 2024
Sendiherra Malaví
Aðrar fréttir
Fréttir
|
31. júlí 2024
„Guðni kveður Bessastaði"
Forseti ræðir embættistíð sína við Ríkissjónvarpið.
Lesa frétt
Fréttir
|
30. júlí 2024
Varnir og viðbrögð í Grindavík
Forsetahjón taka á móti fólki sem vann að verndun innviða.
Lesa frétt