Forsetahjón taka á móti keppendum í Ólympíuliði Íslands, fylgdarliði, fararstjórn og fulltrúum frá Íþrótta-og ólympíusambandi Ísands á Bessastöðum.
Lokahópur Ólympíufara var kynntur fyrr í vikunni en fimm munu keppa fyrir Íslands hönd á Sumarólympíuleikunum 2024. Það eru þau Erna Sóley Grímsdóttir, keppandi í kúluvarpi, Hákon Þór Svavarsson, keppandi í haglabyssuskotfimi, Anton Sveinn McKee, keppandi í 100 og 200 metra bringusundi, Snæfríður Sól Jórunnardóttir, keppandi í 100 og 200 metra skriðsundi, og Guðlaug Edda Hannesdóttir, keppandi í þríþraut.
Forsetahjón óskuðu Ólympíuförunum velfarnaðar áður en hópurinn heldur til Frakklands, en Ólympíuleikarnir verða settir í París þann 26. júlí. Þá kynnti Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, fánabera Íslands á setningarhátíð Ólympíuleikanna.
Fánaberar Íslands verða þau Guðlaug Edda Hannesdóttir sem keppir í þríþraut og Hákon Þór Svavarsson sem keppir í haglabyssuskotfimi. Þau eru bæði að keppa í fyrsta sinn á Ólympíuleikum og fá þennan heiður samhliða frumraun sinni. Jafnframt verður þetta í fyrsta sinn sem keppendur í skotíþróttum og þríþraut eru fánaberar Íslands á setningarhátíð Ólympíuleikanna.
Pistill forseta: Frækinn hópur á Ólympíuleika.