Forseti sæmir 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 17. júní 2021. Þau eru:
- Dagný Kristjánsdóttir fyrrverandi prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir kennslu og rannsóknir á bókmenntum íslenskra kvenna og barnabókmenntum.
- Edda Jónsdóttir myndlistarmaður og galleristi, Reykjavík, riddarakross fyrir forystu um kynningu og miðlun á íslenskri myndlist.
- Egill Eðvarðsson kvikmyndagerðarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir frumkvöðlastörf í dagskrárgerð fyrir sjónvarp og framlag til íslenskrar kvikmyndagerðar.
- Felix Valsson svæfinga- og gjörgæslulæknir, Mosfellsbæ, riddarakross fyrir forystu við innleiðingu nýrrar tækni á sviði lækninga og framlag til björgunarstarfa.
- Jón Kristinn Cortez tónlistarkennari og kórstjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til kóratónlistar og forystu um útgáfu sönglaga eftir íslensk tónskáld.
- Lára Stefánsdóttir skólameistari, Ólafsfirði, riddarakross fyrir frumkvæði og nýsköpun á vettvangi framhaldsskóla.
- Margrét Kristmannsdóttir framkvæmdastjóri og fyrrverandi varaformaður Samtaka atvinnulífsins, Kópavogi, riddarakross fyrir framlag til íslensks atvinnulífs og opinberrar umræðu.
- Már Guðmundsson hagfræðingur og fyrrverandi seðlabankastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu.
- Ólafur Flóvenz jarðeðlisfræðingur og fyrrverandi forstjóri Íslenskra orkurannsókna, Reykjavík, riddarakross fyrir forystu á vettvangi rannsókna á íslenskum orkuauðlindum.
- Ólafur Karl Nielsen fuglafræðingur og formaður Fuglaverndar, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir á íslenskum fuglum, ekki síst fálka og rjúpu, og miðlun þekkingar á því sviði.
- Páll Halldórsson flugstjóri, Selfossi, riddarakross fyrir framlag til björgunar mannslífa og brautryðjandastörf á vettvangi landgræðslu.
- Rakel Garðarsdóttir framkvæmdastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til að efla vitund um matarsóun, betri nýtingu og umhverfismál.
- Rósa Björg Jónsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir sjálfboðastörf í þágu Móðurmáls, samtaka um tvítyngi, við skráningu og miðlun barnabóka á öðrum tungumálum en íslensku.
- Þorbjörg Helgadóttir fyrrverandi orðabókarritstjóri við Árnasafn í Kaupmannahöfn, Nørre Broby í Danmörku, riddarakross fyrir framlag til íslenskra fræða.
Sjá einnig fréttatilkynningu.