Forsetahjón heimsækja íbúa dvalarheimila í Reykjanesbæ. Einnig héldu þau í aðgerðastjórnstöð Almannavarna í húsnæði Brunavarna Suðurnesja og ræddu við embættismenn og aðra sem stýra aðgerðum vegna heitavatnsskorts á Suðurnesjum.
Forsetahjón lögðu leið sín á dvalarheimilin Hlévang og Nesvelli og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem aldraðir Grindvíkingar hafa nú aðsetur. Á öllum þessum stöðum létu forsetahjón í ljós þakkir til þeirra sem unnið hafa nótt og dag að viðgerðum og gerð nýrra heitavatnslagna, og ekki síður þeirra sem hafa rutt upp varnargörðum að undanförnu, oftar en ekki í nánd við glóandi hraun. Einnig þökkuðu þau það æðruleysi og þá seiglu sem Suðurnesjamenn sýna nú sem endranær.