Fréttir | 31. júlí 2024

Fundað í ríkisráði

Forseti stýrir fundi ríkisráðs á Bessastöðum. Var þetta síðasta opinbera embættisverk forseta. Hann kvaddi um leið ráðherra ríkisstjórnarinnar, þakkaði  samstarfið og óskaði þeim alls velfarnaðar. Forseti bar einnig fram þakkir til annarra ráðherra, alþingismanna og embættismanna sem hann hefur unnið með á vettvangi ríkisráðs í forsetatíð sinni.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar