Heimsókn í Bláskógabyggð 9. júní 2017
Myndir frá opinberri heimsókn forseta til Bláskógabyggðar.
Forsetahjón skoða þingvelli með leiðsögn Vilhjálms Árnasonar, formanns Þingvallanefndar, og fleiri fulltrúa þjóðgarðsins.
Frá heimsókn forsetahjóna í Laugarvatnshella þar sem híbýli hafa verið endurgerð í fyrri mynd sinni.
Forsetahjón ásamt Halldóri Páli Halldórssyni skólameistara við komuna að Laugarvatni.
Forseti og forsetafrú bæða sér á nýbökuðu hverabrauði við vatnsbakka Laugarvatns.
Slegið á létta strengi í fjósinu á Hjálmsstöðum hjá þeim Daníel Pálssyni og Ragnhildi Sævarsdóttur.
Forseti og Óttarr Proppé heilbirgðisráðherra voru vottar við undirritun samnings milli Landlæknisembættisins og Bláskógabyggðar um Heilsueflandi samfélag í Heilsugæslunni í Laugarási.
Forsetahjón þiggja að skilnaði gjafir frá bændunum í Friðheimum, þeim Helenu Hermundardóttur og Knúti Ármanni.
Glæsilegar móttökur við Aratungu í Reykholti.
Forsetahjón ásamt sveitarstjórnarmönnum Bláskógabyggðar.
Kór og hljómsveit skólabarna úr Bláskógabyggð.
Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar, tekur við gjöf forseta til sveitarfélagsins.