Opinber heimsókn í Reykjanesbæ
Opinber heimsókn í Reykjanesbæ 2.-3. maí 2019. Ljósmyndir: Gunnar G. Vigfússon.
Forsetahjónin gæða sér á þjóðlega skreyttri köku hjá Skólamat í Reykjanesbæ.
Forseti og forsetafrú ásamt tveimur börnum á Barnamenningarhátíð í Reykjanesbæ.
Forseti setur Barnamenningarhátíð í Duus húsum í Reykjanesbæ.
Forsetahjón í hópi kátra krakka í Duus húsum.
Forsetahjónin slá á létta strengi á myndlistarsýningu barna í Reykjanesbæ.
Hlustað á ávarp forseta bæjarstjórnar í ráðhúsinu í Reykjanesbæ.
Kristján Ásmundsson skólameistari sýnir forsetahjónum leikfang, smíðað af nemanda við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Forseti ávarpar nemendur við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Forsetahjónin ræða við forsvarsmenn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Frá heimsókn í Dósasel í Reykjanesbæ.
Forsetahjónin hlusta á ávarp í Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.
Litið inn á fótboltaæfingu hjá yngri flokkum í Reykjaneshöllinni.
Frá heimsókn á æfingu fimleikaflokka í Reykjanesbæ.
Rokksafnið í Hljómahöllinni skoðað.
Forsetahjón ásamt bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Efnileg, ung söngkona ásamt léttsveit sem lék á fjölskyldusamkomu í Stapanum.
Forseti afhendir Jóhanni Friðrik Friðrikssyni, forseta bæjarstjórnar, gjöf til bæjarfélagsins.
Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Jónína Guðjónsdóttir, eiginkona hans, og forsetahjónin í Víkingaheimum.
Gestir í móttöku bæjarstjórnar, sem haldin var í Víkingaheimum, hlusta á ávarp forseta Íslands.
Frá heimsókn til nýsköpunarfyrirtækja í Ásbrú.
Forsetahjónin skoða sig um í Hæfingarstöðinni í Reykjanesbæ.
Hjálmar Árnason ávarpar forsetahjón og aðra gesti í Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs.
Forseti afhendir Hjálmari Árnasyni framkvæmdastjóra gjöf til Keilis.
Forseti spreytir sig á flugmennsku í flughermi Keilis.
Nemendur Háaleitisskóla ávarpaðir á sal.
Frá heimsókn í Fjölsmiðjuna á Suðurnesjum.
Litið inn í Bardagahöllina þar sem stúlkur voru að æfa júdó.
Frá heimsókn í tækvandósalinn í Bardagahöllinni í Reykjanesbæ.
Forseti ávarpar eldri borgara Reykjanesbæjar á Nesvöllum.
Forsetafrú blandar geði við fulltrúa eldri kynslóðarinnar í Reykjanesbæ.