Ferð forsetahjóna til Manitoba
Manitobaferð 17.-19. maí 2019.
Forseti flytur ávarp við fánaathöfn fyrir utan ráðhús Winnipegborgar.
Forsetahjón ásamt fylgdarliði við styttu af Jóni Sigurðssyni á flötinni við þinghús Manitobafylkis.
Forsetahjónin ásamt Janice C. Filmon, ríkisstjóra Manitoba, og eigimanni hennar.
Forseti og forsetafrú ásamt rektor Manitobaháskóla, David T. Barnard.
Frá heimsókn í Manitobaháskóla, að loknum fundi með lykilstjórnendum skólans.
J.P. Buchan íslenskukennari og Janis Johnson öldungadeildarþingmaður ásamt forsetahjónum í Íslandsdeild bókasafns Manitobaháskóla.
Útvarpsviðtal við forseta Íslands, tekið í háskólabókasafninu.
Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna: skjöl á sýningu Mannréttindasafnsins í Winnipeg.
Forsetahjón og Stewart Wheeler, prótókollstjóri Kanada, skoða sýningu Mannréttindasafnsins í Winnipeg undir leiðsögn John Young, forstjóra safnsins.
Forsetahjónin staldra við á efstu hæð Mannréttindasafnsins í Winnipeg.
Forseti ávarpar afmælisráðstefnu Þjóðræknisfélaga Íslendinga í Norður-Ameríku.
Forseti spjallar við Brian Pallister, forsætisráðherra Manitobafylkis, og Ester, konu hans, sem er af íslenskum ættum.
Forseti ávarpar gesti á Fairmont hótelinu í Winnipeg.
Forseti ræðir við Almar Grímsson og fleiri gesti á afmælisráðstefnu Þjóðræknisfélaganna.
Forsetahjón ásamt Dilla Narfason við stein sem reistur var á Willow Island við Winnipegvatn til minningar um landnám Íslendinga í Vesturheimi.
Forsetafrúin spjallar við dvalargesti á Betel heimilinu fyrir aldraða í Gimli.
Forseti spjallar við einn dvalargesta á Betel heimilinu í Gimli.
Minjasafn Nýja Íslands í Gimli.
Forsetahjón skoða minjasafnið í Gimli undir leiðsögn Julianna Roberts safnvarðar.
Forsetahjónin hlusta á óvænt einsöngsatriði í Betel dvalarheimilinu.
Einn dvalargesta á Betel heimilinu (lengst til hægri) stendur við borð sitt og syngur Öxar við ána á íslensku til heiðurs forsetahjónum.
Forsetahjónin við myndarlegt minnismerki um norrænan arf í Gimli.
Engimýri, myndarleg hús og safn til minningar um arfleifð Vestur-Íslendinga.
Forsetahjónin í Engimýri ásamt Nelson Gerrard og Joel Friðfinnsson sem báðir eru fróðleiksmenn og bændur.
Forsetahjónin spjalla við gesti í hádegisverðarboði í Gimli.
Forsetahjónin ásamt gestgjöfum við minnismerkið um Sigtrygg Jónasson í Riverton en hann settist að í Manitoba árið 1872, fyrstur Íslendinga.
Frá safninu á Engimýri.
Nelson Gerrard segir frá fjölskyldunni sem forðum bjó á Engimýri.
Skipst á gjöfum á kveðjustund á Engimýri.
Frá heimsókn í fuglastyttusafn Einars Vigfússonar í Arborg, Manitoba.
First Lutheran Church í Winnipeg þar sem Þjóðræknisfélag Íslendinga í borginni var stofnað árið 1919.
Forseti afhjúpar minningarskjöld um stofnun fyrsta íslenska þjóðræknisfélagsins í Winnipeg.
Minningarskjöldur á First Lutheran Church í Winnipeg.
Rætt við gesti á minningarathöfn við First Lutheran Church.
Frá heimsókn í Norðurlandahúsið í Winnipeg.
Stefan Jonasson prestur segir frá Íslendingaslóðum í Winnipeg.
Forsetahjón ásamt Stefan Jonasson við elsta borgarhlið Winnipegborgar.
Forsegi ávarpar gesti í samkvæmi í bústað aðalræðismannsins í Winnipeg.