Fréttapistill | 09. júní 2022

Mikið var gaman í Ísafjarðarbæ

Mikið var gaman í Ísafjarðarbæ í gær og fyrradag. Fyrir hönd okkar Elizu þakka ég kærlega gestrisni og góðvild heimafólks. Við fórum í skrúðgöngu og hittum ungt lið og aldið og allt þar á milli, fræddumst um sóknarfæri í útvegi og eldi, hátækni og nýsköpun, ferðaþjónustu og fjarvinnu svo að eitthvað sé nefnt.

Leiðin lá um Ísafjörð og Hnífsdal, Þingeyri og Suðureyri. Samfélag á þessum slóðum getur eflst enn frekar ef rétt er á málum haldið, auðlindir eru nýttar á sjálfbæran og umhverfisvænan hátt og fólk fær bæði að njóta þeirra og sýna hvað í því býr. Ég þakka þeim sem hlýddu.

Hér eru nokkrar myndir að vestan en frekari fregnir og fleiri myndi frá heimsókninni má sjá á www.forseti.is

Birtist fyrst á facebook-síðu forseta 9. júní 2022.

  • Skrúðganga í opinberri heimsókn til Ísafjarðar. Ljósmynd: Haukur Sigurðsson
  • Leikskólinn Tjarnarbær á Suðureyri heimsóttur. Ljósmynd: Haukur Sigurðsson
  • Sjósund í Ísafjarðarhöfn.
  • Samkoma með bæjarbúum í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Ljósmynd: Haukur Sigurðsson
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar