Fréttapistill | 08. sep. 2022

Blessuð sé minning Elísabetar II.

Við andlát Elísabetar II. Bretadrottningar sendi ég Karli III. Bretakonungi samúðarkveðju fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Þá kveðju færi ég einnig bresku konungsfjölskyldunni, íbúum Stóra-Bretlands og Samveldisins.

Ég nefni meðal annars hversu vel Íslendingum líkaði við drottningu í heimsókn hennar til Íslands árið 1990. Þá sem endranær var hún virðuleg en laus við yfirlæti. Einn merkasti þjóðarleiðtogi seinni alda er fallinn frá. Blessuð sé minning Elísabetar II.

Birtist fyrst á facebook-síðu forseta 8. september 2022.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar